Annað stærsta farsímafyrirtæki Indlands, Reliance Communications, hyggst bjóða í fjórða stærsta farsímatæki landsins, Hutchinson Essar, en Reliance hyggst bíða eftir því að Vodafone Group leiki fyrsta leikinn, segir í frétt Dow Jones.

En í gær mun stjórn Vodafone Group hafa fundað um að leggja fram 940 milljarða krónu tilboð í fyrirtækið.

Aðilar sem eru nákomnir málinu segja að Reliance sé þegar búið að fjármagna kaupin.