Vodafone kynnir Vodafone PLAY, áskriftarveitu sem einungis er aðgengileg í Vodafone Sjónvarpi. Þetta kemur fram í tilkynningu.

Með Vodafone PLAY munu áskrifendur fá ótakmarkaðan aðgang að fjölda íslenskra og erlendra kvikmynda, tónleikum, barnaefni og upplesnum ævintýrum. Um mun vera að ræða fyrstu íslensku alhliða áskriftarveituna í anda Netflix. Þjónustan er sérstaklega hönnuð fyrir íslenskan markað.