RE/MAX, umsvifamesti fasteignasali landsins, skrifaði nýlega undir samning við Vodafone á Íslandi um heildarfjarskiptaþjónustu fyrirtækisins, segir í fréttatilkynningu. Virði samningsins var ekki gefið upp.

Samningurinn gildir til næstu þriggja ára og nær til hefðbundinnar símaþjónustu, farsíma og gagnatenginga við allar fasteignasölur sem starfa undir merkjum RE/MAX hér á landi, segir í tilkynningunni.

Hjá RE/MAX starfa um 170 manns á tólf fasteignasölum á höfuðborgarsvæðinu, í Reykjanesbæ og á Selfossi og munu tvær sölur bætast við á þessu ári.