Vodafone hefur hækkað um 4,82% það sem af er degi, í 292 milljón króna viðskiptum. Fæst nú hvert bréf félagsins á 61,95 krónur. Einnig hefur gengi bréfa Össurar hækkað töluvert, eða um 5,26% en í mjög litlum viðskiptum.

Önnur félög sem hafa hækkað nokkuð í viðskiptum dagsins eru til að mynda N1, sem hafa hækkað um 3,43% í 238 milljón króna viðskiptum, Eik fasteignafélag hefur hækkað um 2,46% í 53 milljón króna viðskiptum og Icelandair um 2,47% í 137 milljón króna viðskiptum.

Fyrir utan bréf Eimskipa og Haga, hefur gengi allra félaga hækkað það sem af er viðskiptadegi og hefur Úrvalsvísitalan að sama skapi hækkað um 1,34%.