Hópur vogunarsjóða sem fóru í mál fyrir bandarískum dómstólum við þýska bílaframleiðandann Porsche hafa nú áfrýjað frávísun þess. Þetta kemur fram á vef Reuters.

Vogunarsjóðirnir gerðu kröfu um 2 milljarða dala bætur vegna þess að Porsche hafi vísvitandi blekkt markaðsaðila.  Porsche hafi opinberlega neitað því opinberlega að ætla að kaupa Volkswagen en hafi á sama tíma keypt með leynd næstum öll hlutabréf VW sem fóru á markað.

Vogunarsjóðirnir áfrýjuðu á föstudag ákvörðun dómara frá 31. desember þar sem málinu var vísað frá.