Bandaríski vogunarsjóðurinn Wellington Management Company LLP hefur selt hluti í N1 fyrir um 94 milljónir króna, ef miðað er við gengi bréfa félagsins þegar þetta er skrifað.

Kemur þetta fram í flöggun frá kauphöllinni, en við viðskiptin fór hlutur félagsins niður fyrir 5% markið sem kallar fram slíka tilkynningu. Eignarhluturinn fór niður í 4,97% við viðskiptin.

Á félagið nú eftir viðskiptin sem fólu í sér sölu á 807.305 hlutum í félaginu 12.417.811 hluta, en markaðsverðmæti þeirra miðað við ofangreint verð er þá tæplega 1,5 milljarðar króna, eða 1.446.674.982 krónur.