Samkvæmt heimildum Bloomberg eru Volkswagen-verksmiðjurnar nú tilbúnar í að kaupa það sem eftir stendur af hlutafé í þýska bílaframleiðandanum Porsche en Volkswagen á rétt tæp 50% en þann hlut keypti Volkswagen árið 2009.

Volkswagen hyggst nú að sögn ganga frá kaupum á þeim rúmu 50% sem eftir standa. Í frétt Bloomberg er sagt að nú sé aðeins beðið eftir grænu ljósi frá þýskum skattayfirvöldum.

Á sínum tíma stóð til að sameina Volkswagen og Porsche en málaferli gegn Porsche vestur í Bandaríkjunum hafa sett verðmat í óvissu og því hefur ekki enn orðið af sameiningu.