Þýski bílaframleiðandinn Volkswagen mun innkalla 2,6 milljónir bíla víðsvegar um heiminn vegna margskonar tæknivandamála. Vokswagen er stærsti bílagramleiðandi í Evrópu.

Talsmenn fyrirtækisins segja að umræddir tæknigallar séu í mörgum tegundum af Volkswagen. Á meðal vandamálanna eru biluð ljós, lekar bensínleiðslur og röng olía á gírum.