Sænski bifreiðaframleiðandinn Volvo hefur gert tilboð í japanska framleiðandan Nissan Diesel Motor, en tilboðið hljóðar upp á 140 milljarða króna, með yfirtöku á skuldum fyrirtækisins. Með yfirtökunni myndi Volvo tryggja sér fótfestu á Asíumarkaði, en Volvo á þegar 19% hlut í fyrirtækinu. Tilboðið er 32% hærra en meðalgengi Nissan síðustu þrjá mánuðuina.