Volvo ætlar í auglýsinga- og markaðssamstarf við sænsku tónlistarkonuna Robyn. Hún mun leiða annan kafla auglýsingaherferðarinnar Made By Sweden þar sem hún kynnir Volvo V60 og nýju Drive-E vélalínuna.

Í tilkynningu frá umboðsaðila Volvo hér á landi segir að framtíðarsýn bílaframleiðandans sé að framleiða bíla sem eru algjörlega lausir við skaðlegan útblástur og sem hluti af þeirri sýn hefur Volvo framleitt nýju Drive-E vélarnar. Með þeim getur Volvo boðið viðskiptavinum ótrúlegar tölur hvað varðar eyðslu, útblástur og afl.

Robyn er ein farsælasta tónlistarkona Svía. Síðan hún kom fyrst fram á sjónarsviðið árið 1995 hefur hún selt yfir milljón plötur og á sér aðdáendur um heim allan. Hún hefur meðal annars komið til Íslands árið 2010 þegar hún kom fram á Iceland Airwaves.