Alda Karen Hjaltalín, 24 ára sölu- og markaðsstjóri hjá Ghostlamp er meðal þeirra 20 sem nefndir eru á almannatengslafyrirtækisins Góðra samskipta yfir vonarstjörnur í viðskiptalífinu, en félagið er í eigu Andrésar Jónssonar almannatengils.
Eins og Viðskiptablaðið hefur greint frá birti félagið lista yfir 40 eftirtektarverða stjórnendur, 40 ára og yngri, en þessi listi var valinn í tengslum við gerð þess lista. Um er að ræða fólk sem var tilnefnt, en komst að lokum ekki inn á aðallistann, en vænst er að á næstu árum geti það átt eftir að skjóta upp kollinum á honum innan fárra ára.
Lesa má listann í heild sinni hér , en meðal annarra á listanum eru í stafrófsröð:
- Alda Karen Hjaltalín (24), sölu- og markaðsstjóri hjá Ghostlamp.
- Alexander Jensen Hjálmarsson (30), sérfræðingur hjá GAMMA.
- Anna Fríða Gísladóttir (27), markaðsstjóri hjá Domino‘s.
- Ari Guðjónsson (29), yfirlögfræðingur Icelandair Group.
- Arnar Gauti Reynisson (36), fjármálastjóri Heimavalla.
- Ásdís Auðunsdóttir (30), verkefnisstjóri hjá Deloitte.
- Björn Brynjúlfur Björnsson (30), fyrrverandi hagfræðingur Viðskiptaráðs.
- Darri Freyr Atlason (23), sérfræðingur í stafrænni þróun hjá Íslandsbanka.
- Elísabet Guðrún Björnsdóttir (34), sérfræðingur hjá Landsbankanum.
- Eyrún Jónsdóttir (37), forstöðumaður hjá CCP.
- Hafsteinn Hauksson, (28) sérfræðingur hjá GAMMA í London.
- Hildur Einarsdóttir (35), forstöðumaður hjá Össuri.
- Hrólfur Andri Tómasson (29), framkvæmdastjóri Framtíðarinnar lánasjóðs sem er í eigu GAMMA.
- Kristinn Árni Lár Hróbjartsson (28), sérfræðingur hjá Kolibri.
- Kristrún Frostadóttir (29), aðalhagfræðingur Kviku banka.
- Magnús Þorlákur Lúðvíksson (29), sérfræðingur í viðskiptaþróun hjá Icelandair.
- Rakel Guðmundsdóttir (26), rekstrarstjóri Gló.
- Samúel Karl White (40), sérfræðingur hjá Creditinfo.
- Sigríður María Egilsdóttir (23). Laganemi í Háskólanum í Reykjavík.
-
Þuríður Björg Guðnadóttir (29), framkvæmdastjóri hjá Nova.