Ríkisstjórnin segir endalok reksturs Wow air vonbrigði. Fylgst verði með því hvernig gangi að koma farþegum heim. Ljóst sé að um áfall sé að ræða fyrir starfsmenn félagsins og aðra aðila. Engu síður standi hagkerfið sterkum fótum og efnahagsleg áhrif verði einkum til skams tíma. Hver áhrifin til lengri tíma ráðist af þróun á markaði.

Þá hefur Samgöngustofa birt yfirlýsingu um hver réttindi farþega séu vegna rekstrarstöðvunar Wow air.

Yfirlýsing ríkisstjórnarinnar í heild sinni:

„Ríkisstjórn Íslands lýsir yfir vonbrigðum með að tilraunir WOW air hf. til að tryggja rekstur félagsins skiluðu ekki árangri. Viðbúnaðarhópur stjórnvalda fylgist grannt með því að heimflutningur farþega gangi greiðlega fyrir sig.

Rekstrarstöðvun WOW air hf. er mikið áfall fyrir starfsfólk félagins og aðra þá sem byggt hafa afkomu sína á starfsemi þess.

Staða efnahagsmála er sterk og hagkerfið vel í stakk búið að takast á við þessa áskorun. Efnahagsleg áhrif verða einkum til skamms tíma og kalla á endurmat áætlana en áhrifin til lengri tíma ráðast af þróun á markaði.“