Hlutabréf í Evrópu og Asíu hafa lækkað í kjölfar yfirlýsingar fjármálaráðherra G 7 ríkjanna um að óvissan á lánamarkaði í Bandaríkjunum mun hægja mjög á vexti hagkerfisins þar í landi fyrst um sinn. Verðgildi Carlsberg A/S lækkaði eftir að Financial Times greindi frá áformum ölgerðarinnar um kaup á stórum hlut í breska bjórframleiðandanum Scottish & Newcastle Plc. Toyota Motor Corp. hefur einnig lækkað mikið og hafa hlutabréf í fyrirtækinu ekki verið lægri í 14 mánuði.