Ólöf Nordal, innanríkisráðherra, hefur ákveðið að birta skuli reglur um valdbeitingu lögreglumanna og meðferð og notkun valdbeitingartækja og vopna sem þáverandi dómsmálaráðherra setti 22. febrúar 1999. Þetta kemur fram í frétt á vef ráðuneytisins .

Þá ákvað ráðherra jafnframt að birta reglur um valdbeitingu handhafa lögregluvalds hjá Landshelgisgæslu Íslands. Reglurnar munu jafnframt birtast á næstunni í Stjórnartíðindum.

Vopnareglur lögreglunnar .

Vopnareglur Landhelgisgæslunnar .