Kortaveltan nam næstum 9,8 milljörðum króna. Erlendir ferðamenn vörðu mestu í gistingu, næstmestu í verslun og þar næst í ýmsa skipulagða ferðaþjónustu eins og skoðunarferðir og hvalaskoðun. Þetta sýna tölur Rannsóknarseturs verslunarinnar sem birtar voru í dag.

Ferðamenn greiddu rúmlega 1,1 milljarð króna með greiðslukortum fyrir veitingar í júní sem er um 24% aukning frá júní í fyrra. Þá greiddu erlendir ferðamenn næstum 1,8 milljarð króna með kortum sínum í verslunum hér á landi, sem var 13%  hærri upphæð en í júní í fyrra. Fjórðungsaukning  var í erlendri kortaveltu í dagvöruverslunum og 17% aukning í Fríhöfninni, svo dæmi séu tekin.

Útlendingar greiddu í júní 21 milljón króna með kortum fyrir ferjuflutninga sem er aukning um 156% frá síðasta ári. Rannsóknarsetur verslunarinnar telur líklegt að þar sé um að ræða mikla aukningu ferðamanna til Vestmannaeyja og um Breiðafjörð.

Kortavelta vegna gistingar á tjaldstæðum og öðrum gististöðum en hótelum og gistiheimilum, jókst um 119% í júní frá sama mánuði í fyrra. Erlend kortavelta á þessum gistisvæðum nam 9 milljónum í júní síðastliðnum sem er þó aðeins brot af greiðslum vegna hótelgistinga sem var um 2,5 milljarðar króna.