Samkvæmt bráðabirgðatölum sem Hagstofan birti nú í morgun voru vöruskipti óhagstæð um 6,6 milljarða króna í september.

Samtals útflutningur í september var 47,8 milljarðar og innflutningur var 54,4 milljarðar króna.

Þetta er nokkur aukning frá seinasta mánuði en þá voru vöruskipti óhagstæð um 2,1 milljarð króna. Samtals eru vöruskipi fyrir fyrstu níu mánuði ársins neikvæð sem nemur 15,1 milljarði króna.