Samkvæmt bráðabirgðatölum var vöru- og þjónustujöfnuður á fyrsta ársfjórðungi 2019, eins og hann birtist í þjóðhagsreikningum og greiðslujöfnuði, jákvæður um 33,2 milljarða króna samanborið við 9,3 milljarða króna afgang á sama tíma árið 2018, á gengi hvors árs. Þetta er það sem fram kemur á vef Hagstofunnar .

Umreiknaður vöruskiptajöfnuður var hagstæður um 3,5 milljarða á meðan þjónustujöfnuður var hagstæður um 29,7 milljarða. Heildarútflutningstekjur á fyrsta ársfjórðungi 2019, vegna vöru- og þjónustuviðskipta, námu 308,4 milljörðum króna en heildarinnflutningur á vörum og þjónustu nam 275,2 milljörðum króna.

Samhliða ársfjórðungsútgáfu á vöruviðskipta- og þjónustujöfnuði uppfærir Hagstofan gögn um mánaðarlegan vöruviðskipta- og þjónustujöfnuð á fyrsta ársfjórðungi 2019. Í mars var áætlað verðmæti útflutnings fyrir vöru- og þjónustuviðskipti 100,1 milljarður en áætlað verðmæti innflutnings vöru- og þjónustuviðskipta 97,4 milljarðar. Vöru og þjónustujöfnuður er því áætlaður jákvæður um 2,7 milljarða í mars 2019.