Samninganefnd Eflingar samþykkti á fundi sínum í gær verkfallsboðanir sem taka til annars vegar hótelkeðjunnar Berjaya Hotels og hótelsins The Reykjavík Edition, og hins vegar til starfa við vörubifreiðaakstur og olíudreifingu. Atkvæðagreiðslur meðal félagsfólks sem boðanirnar taka til verða auglýstar á vef Eflingar fyrir hádegi í dag. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá stéttarfélaginu.

Í fréttatilkynningu segir að verkfallsboðunin á Berjaya Hotels nái til á fjórða hundrað Eflingarfélaga. Um sé að ræða hótel sem áður voru rekin undir nafni Icelandair Hotels, m.a. Hótel Natura við Nauthólsveg og Hilton Nordica á Suðurlandsbraut. Á The Reykjavík Edition starfi svo vel á annað hundrað Eflingarfélagar. Samþykki þessir hópar verkfall komi þeir til viðbótar við þá tæplega 300 Eflingarfélaga sem þegar hafi samþykkt verkfall á Íslandshótelum.

Hvað verkfallsboðanir í vörubílaakstri og olíudreifingu varðar boðar Efling verkföll hjá Samskip, Olíudreifingu og Skeljungi.

„Verkfallsboðun hjá Samskip tekur til alls vörubifreiðaaksturs sem gerður er út frá höfuðstöðvum fyrirtækisins við Sundahöfn. Verkfallsboðun hjá Olíudreifingu og Skeljungi nær til aksturs og annarra starfa við olíudreifingu, en þessi fyrirtæki annast allan flutning á olíu frá stærstu olíubirgðastöð landsins í Örfirisey. Verkfallsboðuninni fylgir bókun um undanþágunefndir, sem skulu fjalla um undanþágubeiðnir frá verkfallsboðun í þágu almannaöryggis,“ segir í fréttatilkynningu.

„Samninganefnd áréttaði á fundi sínum í gær stuðning við kröfur félagsmanna hjá Samskip, Olíudreifingu og Skeljungi, en á vinnustöðunum falla sum kjör undir sérkjarasamninga. Nefndin hefur þegar sett fram kröfu um launaflokkahækkanir fyrir bílstjóra,“ segir jafnframt í tilkynningu Eflingar.

Atkvæðagreiðslur um verkfallsboðanirnar hefjast klukkan 12 á hádegi föstudaginn 3. febrúar og þeim lýkur klukkan 18 á þriðjudaginn 7. febrúar.