Vörur voru fluttar inn fyrir rúmlega 27 milljarða króna í apríl, samkvæmt bráðabirgðatölum um innheimtu virðisaukaskatts. Í mars var flutt inn fyrir um 33 milljarða. Þennan samdrátt á milli mánaða má að stórum hluta rekja til minni eldsneytiskaupa.

Í vefriti fjármálaráðuneytisins segir þó að athygli veki að ýmsir neyslutengdir liðir dragist einnig töluvert saman. Innflutningur á fólksbílum dregst mikið saman, en óvenjulega margir bílar voru reyndar fluttir inn í mars.

Innflutningsverðmæti varanlegra neysluvara (t.d. ísskápar og sjónvörp) og hálfvaranlegra neysluvara (t.d. fatnaður) minnkar einnig töluvert á milli mánaða. Á hinn bóginn eykst innflutningur á fjárfestingar- og rekstrarvörum, sem má rekja til stóriðjuframkvæmda.

Staðvirtur innflutningur hefur aukist um 6,3% síðustu tólf mánuði en 22,4% ef horft er til tólf mánaða breytingar ársfjórðungsmeðaltals.