Vörumerkið „Landsbankinn“ verður áfram notað í óbreyttri mynd í allri markaðssetningu Landsbankans.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Landsbankanum en eins og greint var frá í morgun var nafni Nýja Landsbanka Íslands breytt í NBI hf.

Kennitala bankans er sú sama, 471008-0280.