Matvælastofnun hefur hafnað erindi Innness ehf. um að stofnunin sinni því að votta innflutning á búvörum frá EES-ríkjum. Greint er frá þessu í frétt á vef Félags atvinnurekenda .

Þar segir að í þessu ljósi sé ljóst að áfram muni tugir tonna af innfluttum mat liggja undir skemmdum á hafnarbakkanum vegna verkfalls opinberra starfsmanna með tilheyrandi tjóni fyrir innflytjendur og óþægindum fyrir almenna neytendur. Innflutningur á kjöti ostum, hunangi og jafnvel kartöflum hafi stöðvast vegna verkfallsins.

Félag atvinnurekenda segir að Páll Rúnar M. Kristjánsson, lögmaður Innness, hafi fært rök fyrir því í erindum til stofnunarinnar að Matvælastofnun geti vottað innflutning þrátt fyrir verkfall dýralækna, enda sé annars vegar engin krafa um að dýralæknar stimpli vottorð sem gefin séu út af öðrum dýralæknum í útflutningsríkjum og hins vegar geti yfirmenn stofnunarinnar, forstjóri og yfirdýralæknir, gengið í störf undirmanna sinna til að bjarga verðmætum.

„Í svarbréfi MAST kemur fram það álit stofnunarinnar að ekki sé heimilt eða mögulegt að leita til annarra starfsmanna en dýralækna til að sinna þessu verkefni. Yfirdýralæknir sé ekki yfirmaður starfsmanna inn- og útflutningsskrifstofu stofnunarinnar, sem séu í verkfalli. Þá sé hann í sama stéttarfélagi og aðrir dýralæknar hjá stofnuninni. Forstjóri stofnuinarinnar geti ekki gengið í störf allra þeirra tæplega sextíu starfsmanna sem séu í verkfalli eða sett sig inn í verkefni þeirra og störf,“ segir í fréttinni.

Haft er eftir Magnúsi Óla Ólafssyni, forstjóra Innness, að fyrirtækið hafi þegar orðið fyrir tuga milljóna króna tjóni vegna þess að Matvælastofnun hafi ekki vottað innflutning búvara. Enn frekara tjón sé fyrirsjáanlegt þar sem vörur liggi undir skemmdum. „Við íhugum alvarlega að sækja á hendur stofnuninni okkar tjón vegna þessa máls,“ segir Magnús Óli.