Halli á vöruskiptum við útlönd, reiknað á fob verðmæti, nam 109,1 milljörðum króna á fyrstu tíu mánuðum ársins, en á sama tíma árið áður voru þau óhagstæð um 81,8 milljarða á sama gengi og er því vöruskiptajöfnuðurinn 27,3 milljörðum króna lakari en í fyrra, segir í tilkynningu Hagstofu Íslands.

Fyrstu tíu mánuði ársins voru fluttar út vörur fyrir 193,2 milljarða króna, en inn fyrir 302,4 milljarða króna fob (327,9 milljarða króna cif).

Í októbermánuði voru fluttar út vörur fyrir 20 milljarða króna og inn fyrir 27 milljarða króna fob (29,4 milljarða króna cif). Vöruskiptin í október, reiknuð á fob verðmæti, voru því óhagstæð um sjö milljarða króna. Í október 2005 voru vöruskiptin óhagstæð um 6,4 milljarða króna á föstu gengi.

Verðmæti vöruútflutnings fyrstu tíu mánuði ársins var 12,5 milljörðum eða 6,9% meira á föstu gengi en á sama tíma árið áður. Sjávarafurðir voru 54,4% alls útflutnings og var verðmæti þeirra 2,8% meira en á sama tíma árið áður. Aukning var í útflutningi á ferskum fiski og frystum flökum en á móti kom samdráttur í útflutningi á frystri rækju, segir í tilkynningunni.

Útfluttar iðnaðarvörur voru 38,7% alls útflutnings og var verðmæti þeirra 22,2% meira en á sama tíma árið áður, aðallega vegna hækkunar álverðs. Á móti kom samdráttur í útflutningi á kísiljárni. Einnig varð samdráttur í útflutningi skipa og flugvéla.

Verðmæti vöruinnflutnings fyrstu tíu mánuði ársins var 39,8 milljörðum fob eða 15,2% meira á föstu gengi en árið áður. Rúman helming af þeirri aukningu, eða 20,8 milljarða, má rekja til aukins innflutnings á fjárfestingarvöru sem jókst um 35,1%. Innflutningur hrá- og rekstrarvöru jókst um 29,3%, eða um 18,4 milljarða. Verðhækkun á eldneyti og smurolíu leiddi til 14,3% aukningar, eða um 3,5 milljarða.

Innflutningur á neysluvöru, annarrar en mat- og drykkjarvöru, jókst um 8,2% eða 3,5 milljarða en 4,3% aukning varð í innflutningi á mat- og drykkjarvöru. Aftur á móti dróst innflutningur á flutningatækjum saman um 13,1%, eða um 7,2 milljarða, aðallega vegna minni flugvélainnflutnings, segir í tilkynningunni.