Vöruskiptahallinn vestanhafs nam 58,2 milljörðum dollara í mars sem er minniháttar samdráttur frá því mánuðinum undan. Í mars nam hallinn 61,7 milljörðum dollara.
Hallinn var minni en meðalspá greinenda hafði gert ráð fyrir, að því er kemur fram í Vegvísi Landsbankans. Innflutningur dróst saman um 3% í mánuðinum, sem er mesti samdráttur sem mælst hefur í sex ár. Fallandi gengi dollarsins er sagt eiga sinn þátt í minnkandi innflutningi, sem verður dýrari með lægri gengi dollars.
Vöruskiptahallinn við Kína lækkaði einnig í mars. Mikill hagvöxtur Kína á undanförnum árum á útflutningi til Bandaríkjanna mikið að þakka. Því gæti sá vöxtur dregist talsvert saman ef eftirspurn Bandaríkjamanna minnkar að verulega leyti.