Í aprílmánuði voru fluttar út vörur fyrir 33,4 milljarða króna og inn fyrir 40,7 milljarða króna.

Vöruskiptin í apríl voru því óhagstæð um 7,3 milljarða króna. Í apríl 2007 voru vöruskiptin óhagstæð um 14,1 milljarð króna á sama gengi.

Þetta kemur fram á vef Hagstofu Íslands.

Fyrstu fjóra mánuðina 2008 voru fluttar út vörur fyrir 111,4 milljarða króna en inn fyrir 143,5 milljarða króna.

Halli var á vöruskiptunum við útlönd sem nam 32,0 milljörðum en á sama tíma árið áður voru þau óhagstæð um 25,4 milljarða á sama gengi. Vöruskiptajöfnuðurinn var því 6,6 milljörðum króna óhagstæðari en á sama tíma árið áður. Útflutningur

Þá kemur fram að fyrstu fjóra mánuði ársins 2008 var verðmæti vöruútflutnings 5,0 milljörðum eða 4,3% minna á föstu gengi en á sama tíma árið áður. Útfluttar iðnaðarvörur voru nær helmingur alls útflutnings og var verðmæti þeirra 22,4% meira en árið áður.

Þá voru sjávarafurðir 43% alls útflutnings og var verðmæti þeirra 7,1% minna en á sama tíma árið áður.  Mestur samdráttur varð í útflutningi skipa og flugvéla og sjávarafurða, aðallega frystra flaka, en á móti kom aukning í útflutningi á áli, segir á vef Hagstofunnar.

Innflutningur

Fyrstu fjóra mánuði ársins 2008 var verðmæti vöruinnflutnings 1,6 milljörðum eða 1,2% meira á föstu gengi en á sama tíma árið áður.

Mest aukning varð í innflutningi á hrá- og rekstrarvörum og eldsneyti og smurolíum en á móti kom samdráttur í innflutningi á flugvélum og fjárfestingavöru