Í júlímánuði voru fluttar út vörur fyrir 34,1 milljarð króna og inn fyrir 51,6 milljarða króna. Vöruskiptin í júlí voru því óhagstæð um 17,5 milljarða króna.

Þetta kemur fram á vef Hagstofunnar en í júlí 2007 voru vöruskiptin óhagstæð um 15,6 milljarða króna á sama gengi.

Fyrstu sjö mánuðina 2008 voru fluttar út vörur fyrir 241,0 milljarð króna en inn fyrir 282,8 milljarða króna.

Þá var halli á vöruskiptunum við útlönd sem nam 41,9 milljörðum en á sama tíma árið áður voru þau óhagstæð um 65,0 milljarða á sama gengi.

Vöruskiptajöfnuðurinn var því 23,1 milljarði króna hagstæðari en á sama tíma árið áður, samkvæmt tölum Hagstofu. Útflutningur eykst um 13% milli ára

Þá kemur fram að fyrstu sjö mánuði ársins 2008 var verðmæti vöruútflutnings 27,8 milljörðum eða 13,0% meira á föstu gengi en á sama tíma árið áður.

Iðnaðarvörur voru 50,4% alls útflutnings og var verðmæti þeirra 44,8% meira en árið áður. Sjávarafurðir voru 37,0% alls útflutnings og var verðmæti þeirra 5,7% minna en á sama tíma árið áður.

Mest aukning var í útflutningi á áli en á móti kom samdráttur í útflutningi sjávarafurða, aðallega frystra flaka og í útflutningi skipa og flugvéla.

Innflutningur eykst um 1,7% milli ára

Fyrstu sjö mánuði ársins 2008 var verðmæti vöruinnflutnings 4,7 milljörðum eða 1,7% meira á föstu gengi en á sama tíma árið áður.

Mest aukning varð í innflutningi á hrá- og rekstrarvörum og á eldsneyti og smurolíum en á móti kom samdráttur í innflutningi á fjárfestingarvöru og flutningatækjum, aðallega flugvélum