Samkvæmt bráðabirgðatölum fyrir maí 2008 nam útflutningur tæpum 39,3 milljörðum króna og innflutningur 39,9 milljörðum króna.

Þetta kemur fram á vef Hagstofu Íslands.

Vöruskiptin í maí voru því óhagstæð um 0,6 milljarða króna samkvæmt bráðabirgðatölum.