Í júlímánuði voru fluttar út vörur fyrir 16,2 milljarða króna og inn fyrir 35,2 milljarða króna. Vöruskiptin í júlí, reiknuð á fob verðmæti, voru því óhagstæð um 19,1 milljarð króna en það er mesti halli í einum mánuði frá því Hagstofan fór að birta tölur um vöruskiptin eftir mánuðum. Þetta kemur fram í frétt Hagstofunnar.

Í júlí 2005 voru vöruskiptin óhagstæð um 11,9 milljarða króna á föstu gengi.

Fyrstu sjö mánuði ársins voru fluttar út vörur fyrir 130,5 milljarða króna en inn fyrir 216,4 milljarða króna fob (234,4 milljarða króna cif). Halli var á vöruskiptunum við útlönd, reiknað á fob verðmæti, sem nam 85,9 milljörðum en á sama tíma árið áður voru þau óhagstæð um 48,9 milljarða á sama gengi. Vöruskiptajöfnuðurinn var því 37,0 milljörðum króna lakari en á sama tíma árið áður.

Útflutningur

Verðmæti vöruútflutnings fyrstu sjö mánuði ársins var 4,5 milljörðum eða 3,6% meira á föstu gengi¹ en á sama tíma árið áður. Sjávarafurðir voru 56,4% alls útflutnings og var verðmæti þeirra 2,2% meira en á sama tíma árið áður. Aukning var í útflutningi á ferskum fiski, frystum flökum og söltuðum og/eða þurrkuðum fiski en á móti kom samdráttur í útflutningi fiskimjöls. Útfluttar iðnaðarvörur voru 38,9% alls útflutnings og var verðmæti þeirra 22,0% meira en á sama tíma árið áður, aðallega vegna hækkandi álverðs. Á móti kom samdráttur í útflutningi á kísiljárni. Einnig varð samdráttur í útflutningi skipa og flugvéla.

Innflutningur

Verðmæti vöruinnflutnings fyrstu sjö mánuði ársins var 41,5 milljörðum fob eða 23,7% meira á föstu gengi¹ en árið áður. Rúman helming af þeirri aukningu, eða 22,5 milljarða, má rekja til aukins innflutnings á fjárfestingarvöru sem jókst um 60,2%. Innflutningur hrá- og rekstrarvara jókst um 35,9%, eða um 15,1 milljarð. Verðhækkun á eldneyti og smurolíu leiddi til 21,7% aukningar, eða um 3,5 milljarða. Innflutningur á neysluvöru, annarrar en mat- og drykkjarvöru, jókst um 11,9% eða 3,3 milljarða en hverfandi aukning varð í innflutningi á mat- og drykkjarvöru. Innflutningur flugvéla varð 6,6 milljörðum minni en árið áður.