Í janúarmánuði voru fluttar út vörur fyrir 19,2 milljarða króna og inn fyrir 26,2 milljarða króna fob (28,4 milljarða króna cif), vöruskiptin í janúar, reiknuð á fob verðmæti, voru því óhagstæð um 6,9 milljarða króna, segir í tilkynningu Hagstofunnar.

Í janúar 2006 voru vöruskiptin óhagstæð um 10,1 milljarð króna á sama gengi. Verðmæti vöruútflutnings var 6,4% minna á föstu gengi en á sama tíma árið áður og verðmæti vöruinnflutnings var 14,6% minna á föstu gengi en á sama tíma árið áður.