Í júní voru vöruskipti við útlönd óhagstæð um 7,7 milljarða króna. Fluttar voru út vörur fyrir 40,7 milljarða króna og inn fyrir 48,3 milljarða króna, að því er fram kemur á vef Hagstofunnar . Í júní í fyrra voru vöruskiptin hins vegar hagstæð um 1,1 milljarð króna á gengi hvors árs.

Fyrstu sex mánuði ársins 2014 voru fluttar út vörur fyrir 265,4 milljarða króna en inn fyrir 267,8 milljarða króna. Vöruskiptin við útlönd voru því óhagstæð um 2,4 milljarða, en á sama tíma árið áður voru þau hagstæð um 25,1 milljarð á gengi hvors árs. Vöruskiptajöfnuðurinn var því 27,5 milljörðum lakari en á sama tíma í fyrra.

Fyrstu sex mánuði ársins 2014 var verðmæti vöruútflutnings 31,3 milljörðum, eða 10,6%, lægra en í fyrra. Iðnaðarvörur voru 52% alls útflutnings og sjávarafurðir 42,5%. Verðmæti innflutnings á tímabilinu var 3,8 milljörðum, eða 1,4%, lægra en í fyrra, aðallega vegna hrá- og rekstrarvöru, eldsneytis, fjárfestingavöru og flugvéla. Á móti kom aukinn innflutningur á fólksbílum og skipum.