Fluttar voru út vörur fyrir 47,0 milljarða króna og inn fyrir 36,9 milljarða króna í október. Vöruskiptin voru því hagstæð um 10,1 milljarð króna. Í október 2009 voru vöruskiptin hagstæð um tæpa 10,5 milljarða á sama gengi, samkvæmt Hagstofunni.

Fyrstu tíu mánuðina 2010 voru fluttar út vörur fyrir 462,7 milljarða króna en inn fyrir 364,2 milljarða króna. Afgangur var því á vöruskiptunum við útlönd, reiknað á fob verðmæti, sem nam 98,5 milljörðum en á sama tíma árið áður voru þau hagstæð um 74,0 milljarða á sama gengi. Vöruskiptajöfnuðurinn var því 24,5 milljörðum króna hagstæðari en á sama tíma árið áður.

Fyrstu tíu mánuði ársins 2010 var verðmæti vöruútflutnings 57,2 milljörðum eða 14,1% meira á föstu gengi en á sama tíma árið áður. Sjávarafurðir voru 39,7% alls útflutnings og var verðmæti þeirra 7,7% meira en á sama tíma árið áður.  Útfluttar iðnaðarvörur voru 55,4% alls útflutnings og var verðmæti þeirra 34,2% meira en á sama tíma árið áður. Mest aukning varð í verðmæti útflutnings iðnaðarvara, aðallega áls. Einnig varð aukning í útflutningi sjávarafurða en samdráttur varð í útflutningi á skipum og flugvélum.

Fyrstu tíu mánuði ársins 2010 var verðmæti vöruinnflutnings 32,7 milljörðum eða 9,9% meira á föstu gengi en á sama tíma árið áður. Aukning varð í innflutningi á hrá- og rekstrarvöru, fjárfestingarvöru og eldsneyti en á móti kom samdráttur í innflutningi á flutningatækjum.