Í maímánuði voru fluttar út vörur fyrir 38,7 milljarða króna og inn fyrir 31,3 milljarða króna. Vöruskiptin í maí voru því hagstæð um 7,4 milljarða króna.

Þetta kemur fram á vef Hagstofunnar en í maí 2008 voru vöruskiptin óhagstæð um 3,7 milljarða króna á sama gengi.

Þá kemur fram að fyrstu fimm mánuðina 2009 voru fluttar út vörur fyrir 171,1 milljarð króna en inn fyrir 146,9 milljarða króna. Afgangur var því á vöruskiptunum við útlönd sem nam 24,2 milljörðum en á sama tíma árið áður voru þau óhagstæð um 41,5 milljarða á sama gengi.

Vöruskiptajöfnuðurinn var því 65,7 milljörðum króna hagstæðari en á sama tíma árið áður. Sjá nánar á vef Hagstofunnar.