Í maímánuði voru fluttar út vörur fyrir 39,3 milljarða króna og inn fyrir tæpa 39,9 milljarða króna.

Þetta kemur fram á vef Hagstofu Íslands.

Vöruskiptin í maí voru því óhagstæð um 0,5 milljarða króna. Í maí 2007 voru vöruskiptin óhagstæð um 12,6 milljarða króna á sama gengi.

Fyrstu fimm mánuðina 2008 voru fluttar út vörur fyrir 150,8 milljarða króna en inn fyrir 182,8 milljarða króna.

Halli var á vöruskiptunum við útlönd sem nam 32 milljörðum en á sama tíma árið áður voru þau óhagstæð um 37,3 milljarða á sama gengi. Vöruskiptajöfnuðurinn var því 5,3 milljörðum króna hagstæðari en á sama tíma árið áður.

Útflutningur

Fyrstu fimm mánuði ársins 2008 var verðmæti vöruútflutnings 2,2 milljörðum eða 1,5% meira á föstu gengi¹ en á sama tíma árið áður.

Útfluttar iðnaðarvörur voru 51,4% alls útflutnings og var verðmæti þeirra 34,3% meira en árið áður. Sjávarafurðir voru 42,2% alls útflutnings og var verðmæti þeirra 3,7% minna en á sama tíma árið áður.

Mestur samdráttur varð í útflutningi skipa og flugvéla og sjávarafurða, aðallega frystra flaka, en á móti kom aukning í útflutningi á áli.

Innflutningur

Fyrstu fimm mánuði ársins 2008 var verðmæti vöruinnflutnings 3,1 milljarði eða 1,7% minna á föstu gengi¹ en á sama tíma árið áður.

Mestur samdráttur varð í innflutningi á flugvélum og fjárfestingarvöru en á móti kom aukning í innflutningi á hrá- og rekstrarvörum og eldsneyti og smurolíum