Í maímánuði voru fluttar út vörur fyrir 16,0 milljarða króna og inn fyrir 24,0 milljarða króna fob. Vöruskiptin í maí voru því óhagstæð um 8,0 milljarða króna en í maí árið áður voru þau óhagstæð um 3,3 milljarða á föstu gengi. Þetta kemur fram í frétt á heimasíðu Hagstofunnar.

Fyrstu fimm mánuði ársins voru fluttar út vörur fyrir 79,7 milljarða króna en inn fyrir 103,9 milljarða króna. Halli var því á vöruskiptunum við útlönd sem nam 24,2 milljörðum króna en á sama tíma árið áður voru þau óhagstæð um 6,7 milljarða á sama gengi¹. Vöruskiptajöfnuðurinn var því 17,5 milljörðum króna lakari en á sama tíma árið áður.

Verðmæti vöruútflutnings fyrstu fimm mánuði ársins var 3,2 milljörðum eða 4,2% meira á föstu gengi1 en á sama tíma árið áður. Sjávarafurðir voru 61% alls útflutnings og var verðmæti þeirra 5,4% meira en á sama tíma árið áður. Útfluttar iðnaðarvörur voru 34% alls útflutnings og var verðmæti þeirra 1,3% meira en árið áður. Aukning varð í útflutningi á heilum frystum fiski og áli en samdráttur varð í útflutningi á frystri rækju og lyfjum og lækningatækjum.

Verðmæti vöruinnflutnings fyrstu fimm mánuði ársins var 20,7 milljörðum eða 24,9% meira á föstu gengi en árið áður. Aukning varð í flestum liðum innflutnings, mest varð aukning í innflutningi á flutningatækjum, sérstaklega fólksbílum, hrá- og rekstrarvöru og fjárfestingarvöru.

Byggt á upplýsingum frá Hagstofu.