Fluttar voru út vörur fyrir tæpa 48,4 milljarða króna og inn fyrir 37,9 milljarða króna í nóvember á fob-virði. Vöruskipti voru því hagstæð um 10,4 milljarða króna samkvæmt tölum Hagstofunnar. Í nóvember 2009 voru vöruskiptin hagstæð um 1,8 milljarða króna á sama gengi.

Fyrstu ellefu mánuði ársins 2010 voru fluttar út vörur fyrir 511,1 milljarð króna en inn fyrir tæpan 402,1 milljarð króna. Afgangur á vöruskiptum við útlönd var því hagstæður um tæpa 109 milljarða króna.

Útflutningur

Fyrstu ellefu mánuði ársins 2010 var verðmæti vöruútflutnings 67,6 milljörðum eða 15,2% meira á föstu gengi en á sama tíma árið áður. Sjávarafurðir voru 39,9% alls útflutnings og var verðmæti þeirra 8,7% meira en á sama tíma árið áður.  Útfluttar iðnaðarvörur voru 55,4% alls útflutnings og var verðmæti þeirra 34,3% meira en á sama tíma árið áður. Mest aukning varð í verðmæti útflutnings iðnaðarvara, aðallega áls. Einnig varð aukning í útflutningi sjávarafurða en samdráttur varð í útflutningi á skipum og flugvélum.

Innflutningur

Fyrstu ellefu mánuði ársins 2010 var verðmæti vöruinnflutnings 33,8 milljörðum eða 9,2% meira á föstu gengi¹ en á sama tíma árið áður. Aukning varð í innflutningi á hrá- og rekstrarvöru, fjárfestingarvöru og eldsneyti en á móti kom samdráttur í innflutningi á flutningatækjum.