Samkvæmt bráðabirgðatölum Hagstofu Íslands fyrir júní 2010 var verðmæti útflutnings frá Íslandi tæpir 48,0 milljarðar króna og innflutningur 39,3 milljarðar króna. Vöruskiptin í júní, reiknuð á fob verðmæti, voru því hagstæð um 8,6 milljarða króna samkvæmt bráðabirgðatölum.
Vöruskiptin við útlönd
bráðabirgðatölur í júní (milljónir króna)
- Útflutningur alls 47.955,1
- Útfluttar sjávarafurðir alls 19.491,8
- Útfluttar landbúnaðarafurðir 586,7
- Útfluttar iðnaðarvörur 27.082,4
- Útfluttar aðrar vörur alls 794,2
- Innflutningur alls 39.348,7
- Innfluttar mat- og drykkjarvörur 3.834,4
- Innfluttar hrávörur og rekstrarvörur, 13.485,3
- Innflutt eldsneyti og smurolíur 3.849,2
- Innfluttar fjárfest.vörur (þó ekki flutn.tæki) 10.249,3
- Innflutt flutningatæki 2.876,1
- Innfluttar neysluvörur ót.a. 4.938,8
- Innfluttar vörur ót.a (t.d. endursendar vörur) 115,7
- Vöruskiptajöfnuður 8.606,3