Vöruskipti voru jákvæð um 12,3 milljarða króna í nóvember, samkvæmt bráðabirgðatölum Hagstofunnar . Miðað við bráðabirgðatölurnar nam verðmæti útflutnings 56,3 milljörðum króna og innflutnings 44 milljörðum króna. Til samanburðar nam afgangur af vöruskiptum í október 15,2 milljörðum króna.

Gangi þetta að óbreyttu eftir mun afgangur af vöruskiptum á fyrstu ellefu mánuðum ársins nema 77,4 milljörðum króna.