Vöruskipti voru jákvæð um 8,9 milljarða króna í mars, samkvæmt bráðabirgðatölum Hagstofunnar. Gangi það eftir nam afgangur af vöruskiptum á fyrstu þremur mánuðum ársins 28,1 milljarði króna.

Verðmæti útflutnings nam 50,9 milljörðum króna í mánuðinum og innflutnings tæpum 42 milljörðum króna samkvæmt bráðabirgðatölunum.