Samkvæmt bráðabirgðatölum fyrir júní 2015 var útflutningur fob 56,0 milljarðar króna og innflutningur fob tæpir 66,4 milljarðar króna. Vöruskiptin í júní, reiknuð á fob verðmæti, voru því óhagstæð um 10,4 milljarða króna.

Athygli er vakin á því að áætlun um eldsneytiskaup íslenskra flutningsfara erlendis er nú meðtalin í bráðabirgðatölum.

Það sem af er ári hefur vöruskiptajöfnuður sveiflast talsvert frá því að vera jákvæður yfir í að vera neikvæður og öfugt.