Samkvæmt nýjum tölum frá Hagstofu Íslands var vöruskiptajöfnuður við útlönd óhagstæður um 7,2 milljarða í febrúarmánuði. Vörur voru fluttar út fyrir 14,8 milljarða króna og inn fyrir 22,0 milljarða króna. Í febrúar árið 2004 voru vöruskiptin óhagstæð um 4,8 milljarða króna á föstu gengi.

Fyrstu tvo mánuði ársins voru fluttar út vörur fyrir 28,9 milljarða króna en inn fyrir 47,5 milljarða króna. Halli var á vöruskiptunum við útlönd sem nam 18,6 milljörðum en á sama tíma árið áður voru þau óhagstæð um 9,1 milljarð. Vöruskiptajöfnuðurinn var því 9,5 milljörðum króna lakari en á sama tíma árið áður.

Verðmæti vöruútflutnings fyrstu tvo mánuði ársins var 0,2 milljörðum eða 0,8% meira á föstu gengi en á sama tíma árið áður. Sjávarafurðir voru 59% alls útflutnings og var verðmæti þeirra 3,5% meira en á sama tíma árið áður. Útfluttar iðnaðarvörur voru 36% alls útflutnings og var verðmæti þeirra 4,4% minna en árið áður.

Verðmæti vöruinnflutnings fyrstu tvo mánuði ársins var 9,7 milljörðum eða 25,6% meira en árið áður. Mest varð aukning í innflutningi á hrá- og rekstrarvöru og fjárfestingavöru. Á móti kom samdráttur í innflutningi flugvéla.