Samkvæmt bráðabirgðatölum fyrir maí 2009 nam útflutningur hér á landi 38,7 milljörðum króna og innflutningur 31,4 milljörðum króna.

Vöruskiptin í maí voru því hagstæð um 7,3 milljarða króna samkvæmt bráðabirgðatölum Hagstofu íslands.

Á vef Hagstofunnar segir að vísbendingar séu um meira verðmæti útfluttra sjávarafurða og iðnaðarvara og meira verðmæti innflutts eldsneytis en minna verðmæti innfluttra hrá- og rekstrarvara í maí 2009 miðað við apríl 2009.