Í nóvembermánuði voru fluttar út vörur fyrir 50,2 milljarða króna og inn fyrir 44,9 milljarða króna, reiknað á fob verðmæti. Voru vöruskiptin því hagstæð um 5,3 milljarða króna á tímabilinu. Þetta kemur fram í nýjum tölum frá Hagstofu Íslands .

Fyrstu ellefu mánuði ársins 2014 voru fluttar út vörur fyrir 538,1 milljarð króna en inn fyrir 539,9 milljarða króna. Vöruskiptin við útlönd voru því óhagstæð um 1,8 milljarða króna, reiknað á fob verðmæti, en á sama tíma árið áður voru þau hagstæð um 43 milljarða á gengi hvors árs. Vöruskiptajöfnuðurinn var því 44,8 milljörðum króna lakari en á sama tíma árið áður.