Í febrúarmánuði voru fluttar út vörur fyrir 42,7 milljarða króna og inn fyrir 32,4 milljarða króna fob, samkvæmt gögnum Hagstofunnar . (35,1 milljarð króna cif). Vöruskiptin í febrúar, reiknuð á fob verðmæti, voru því hagstæð um 10,3 milljarða króna. Í febrúar 2010 voru vöruskiptin hagstæð um 12,8 milljarða króna á sama gengi¹.

Fyrstu tvo mánuðina 2011 voru fluttar út vörur fyrir 85,1 milljarð króna en inn fyrir tæpa 67,0 milljarða króna fob (72,1 milljarð króna cif). Afgangur var því á vöruskiptunum við útlönd, reiknað á fob verðmæti, sem nam 18,1 milljarði en á sama tíma árið áður voru þau hagstæð um 17,8 milljarða á sama gengi¹. Vöruskiptajöfnuðurinn var því 0,3 milljörðum króna hagstæðari en á sama tíma árið áður.

Útflutningur
Fyrstu tvo mánuði ársins 2011 var verðmæti vöruútflutnings 9,7 milljörðum eða 12,9% meira á föstu gengi¹ en á sama tíma árið áður. Sjávarafurðir voru 35,3% alls útflutnings og var verðmæti þeirra 11,9% meira en á sama tíma árið áður.  Útfluttar iðnaðarvörur voru tæp 60% alls útflutnings og var verðmæti þeirra 12,7% meira en á sama tíma árið áður. Mest aukning varð í verðmæti útflutnings iðnaðarvara, aðallega áls. Einnig varð aukning í útflutningi sjávarafurða.


Innflutningur
Fyrstu tvo mánuði ársins 2011 var verðmæti vöruinnflutnings 9,4 milljörðum eða 16,3 % meira á föstu gengi¹ en á sama tíma árið áður. Aukning varð í innflutningi á eldsneyti, fjárfestingarvöru og hrá- og rekstrarvöru.