Vöruskipti í janúar, reiknuð á fob verðmæti, voru hagstæð um 7,2 milljarða króna, sem er nær sami afgangur og í janúar 2014 á gengi hvors árs. Þetta kemur fram í nýjum tölum frá Hagstofu Íslands .

Í mánuðinum voru fluttar út vörur fyrir 50,6 milljarða króna og inn fyrir 43,4 milljarða króna.