Samkvæmt bráðabirgðatölum fyrir febrúar 2009 nam útflutningur rúmum 32,3 milljörðum króna og innflutningur rúmum 26,4 milljörðum króna.

Vöruskiptin í febrúar voru því hagstæð um 6,0 milljarða króna samkvæmt bráðabirgðatölum sem birtar eru á vef Hagstofu Íslands í dag.

Þar kemur fram að vísbendingar eru um minna verðmæti útflutts áls og minna verðmæti innflutts eldsneytis og hrá og rekstrarvara í febrúar 2009 miðað við janúar 2009.