Í janúarmánuði voru fluttar út vörur fyrir 33,6 milljarða króna og inn fyrir 33,2 milljarða króna.

Þetta kemur fram á vef Hagstofunnar en vöruskiptin í janúar voru því hagstæð um 0,3 milljarða króna.

Í janúar 2008 voru vöruskiptin óhagstæð um 16,1 milljarð króna á sama gengi. Verðmæti vöruútflutnings var 18,9% minna á föstu gengi en í janúar 2008 og verðmæti vöruinnflutnings var 42,2% minna á föstu gengi en í janúar 2008.