Í nóvembermánuði voru fluttar út vörur fyrir 30,9 milljarða króna og inn fyrir 33,4 milljarða króna fob (36,5 milljarða króna cif). Vöruskiptin í nóvember, reiknuð á fob verðmæti, voru því óhagstæð um 2,5 milljarða króna. Í nóvember 2006 voru vöruskiptin óhagstæð um 15,5 milljarða króna á sama gengi. Í frétt á vef Hagstofu Íslands segir að fyrstu ellefu mánuðina 2007 voru fluttar út vörur fyrir 269,3 milljarða króna en inn fyrir 353,4 milljarða króna fob (382,8 milljarða króna cif).

Halli var á vöruskiptunum við útlönd, reiknað á fob verðmæti, sem nam 84,1 milljarði en á sama tíma árið áður voru þau óhagstæð um 135,4 milljarða á sama gengi. Vöruskiptajöfnuðurinn var því 51,3 milljörðum króna hagstæðari en á sama tíma árið áður.

Útflutningur

Fyrstu ellefu mánuði ársins 2007 var verðmæti vöruútflutnings 50 milljörðum eða 22,9% meira á föstu gengi en á sama tíma árið áður. Sjávarafurðir voru 44% alls útflutnings og var verðmæti þeirra 3,9% meira en á sama tíma árið áður. Útfluttar iðnaðarvörur voru 41% alls útflutnings og var verðmæti þeirra 35,2% meira en árið áður. Aukningu útflutnings má einna helst rekja til aukins álútflutnings og aukinnar sölu á skipum og flugvélum.

Innflutningur

Fyrstu ellefu mánuði ársins 2007 var verðmæti vöruinnflutnings einum milljarði eða 0,3% minna á föstu gengi en á sama tíma árið áður. Mestur samdráttur varð í innflutningi á flugvélum og fjárfestingarvöru en á móti kom aukning í innflutningi á mat- og drykkjarvöru og annarri neysluvöru, samkvæmt því sem segir á vef Hagstofunnar.