Bráðabirgðatölur sýna að útflutningur í júní nam 40,7 milljörðum króna (fob) og innflutningur 48,4 milljörðum króna (fob), að því er fram kemur á vef Hagstofunnar . Vöruskiptin í júní, reiknuð á fob verðmæti, voru því óhagstæð um 7,7 milljarða króna samkvæmt bráðabirgðatölum.

Til samanburðar voru vöruskiptin hagstæð um 2,4 milljarða króna í maí. Þá voru vöruskipti við útlönd óhagstæð um 1,1 milljarð í júnímánuði í fyrra.