Samkvæmt bráðabirgðatölum fyrir júní 2008 nam útflutningur 38,3 milljörðum króna og innflutningur 39,2 milljörðum króna.

Vöruskiptin í júní voru því óhagstæð um 0,9 milljarða króna samkvæmt bráðabirgðatölum.

Þetta kemur fram á vef Hagstofu Íslands.