Allt árið 2007 voru fluttar út vörur fyrir 302,8 milljarða króna en inn fyrir 390,7 milljarða króna fob (422,9 milljarða króna cif). Halli var á vöruskiptunum við útlönd, reiknað á fob verðmæti, sem nam 87,9 milljörðum en á sama tíma árið áður voru þau óhagstæð um 155,7 milljarða á sama gengi. Vöruskiptajöfnuðurinn var því tæpum 67,8 milljörðum króna hagstæðari en á sama tíma árið áður.

Í frétt á vef Hagstofu Íslands segir að í desembermánuði hafi verið fluttar út vörur fyrir 25,5 milljarða króna og inn fyrir 34,8 milljarða króna fob (37,7 milljarða króna cif). Vöruskiptin í desember, reiknuð á fob verðmæti, voru því óhagstæð um 9,3 milljarða króna. Í desember 2006 voru vöruskiptin óhagstæð um tæpa 20,2 milljarða króna á sama gengi. Útflutningur Allt árið 2007 var heildarverðmæti vöruútflutnings 64,2 milljörðum eða 26,9% meira á föstu gengi en á sama tíma árið áður. Sjávarafurðir voru 42% alls útflutnings og var verðmæti þeirra 4,4% (5,4 milljörðum) meira en á sama tíma árið áður. Stærstu liðir útfluttra sjávarafurða voru fryst fiskflök, ferskur fiskur og saltaður og/eða þurrkaður fiskur. Útflutningur á frystum flökum jókst en á móti kom samdráttur í útflutningi á frystum heilum fiski. Útfluttar iðnaðarvörur voru 39% alls útflutnings og var verðmæti þeirra 29,7% (27,2 milljörðum) meira en árið áður. Ál vó þyngst í útflutningi iðnaðarvöru. Aukningu útfluttra iðnaðarvara má helst rekja til aukins útflutnings á áli. Sala á skipum og flugvélum jókst umtalsvert á árinu.

Innflutningur Árið  2007 var heildarverðmæti vöruinnflutnings 3,5 milljörðum eða tæpu 1% minna á föstu gengi en á sama tíma árið áður. Stærstu liðir innflutnings 2007 voru hrá- og rekstrarvara með 26,2% hlutdeild, fjárfestingarvara með 22,0% hlutdeild og flutningatæki með 20,3% hlutdeild. Af einstökum liðum varð mestur samdráttur, í krónum talið, í innflutningi á flutningatækjum 13,3%, aðallega flugvélum 46,1% (18,1 milljarður) og fjárfestingavöru 9,4% (8,9 milljarðar) en á móti kom aukning í innflutningi á hrá- og rekstrarvöru 7,4% (7,0 milljarðar), neysluvöru ót.a. 11,8% (6,5 milljarðar) og mat- og drykkjarvöru 13,5% (3,1 milljarður).