Samkvæmt bráðabirgðatölum fyrir september 2018 nam fob verðmæti vöruútflutnings 48,7 milljörðum króna og fob verðmæti vöruinnflutnings 63,8 milljörðum króna. Vöruviðskiptin í september, reiknuð á fob verðmæti, voru því óhagstæð um 15,1 milljarð króna. Þetta kemur fram á vef Hagstofunnar .

Í september 2018 var verðmæti vöruútflutnings 3,8 milljörðum króna hærra en í september 2017 eða 8,4% á gengi hvors árs. Hækkunina á milli ára má að mestu rekja til aukins verðmætis í útflutningi iðnaðarvara.

Verðmæti vöruinnflutnings í september 2018 var 2,2 milljörðum króna lægra en í september 2017 eða 3,4% á gengi hvors árs. Munurinn á milli ára skýrist aðallega af minni innflutningi á neysluvörum öðrum en mat- og drykkjarvörum.